Auglýsing

Change of plans :)

30. desember 2008 klukkan 23:23
Vá, það hefur aldeilis opnað augun mín að komast til Tobbu og Sigga hingað í Alleröd! Gott að fá sýn inní líf Íslendinga á kreppustundum, bæði á Íslandi sem og hérna í Danmörku.

Allt er í fokki á Íslandi og ég er í rauninni að gera mér grein fyrir því fyrst núna. Allt að fara á hausinn, fólk orðið gjaldþrota og næstum hent út á göturnar af íslenska ríkinu sem tókst svona rosalega vel upp í góðærinu! Yell

Fólk er pikkfast í íbúðum sem þau höfðu ekki efni á áður, og þá sérstaklega ekki nú, fólk getur ekki borgað af bílum sínum og uppihald einstaklinga er heldur betur orðið ,,ómerkilegt". Engin Frönsk Riviera fyrir þau lengur og út að borða 2-3 í viku. 

Er búin að vera hérna í viku núna, 3 dagar to go. Ég eldaði lasagne hérna í gær og þá kom Tobba með þessa svakalegu hugmynd af námi fyrir mig hérna úti í Danmörku.

Þetta er borgað Receptionist nám inni í Köben.

Ég myndi reyna framlengja au pair jobbið fram í ágúst og fara svo til Köben í september til að byrja ;)

Fyrst ég er ekki búin með stúdentinn byrja ég á 10 vikna námi (skiptist í 2/3 bóklegt og 1/3 verklegt á veitingastöðum og hótelum). Svo fer ég að vinna sem receptionist á einhverju hótelinu með um 9000 danskar á mánuði. Svo er þetta svona skóla/vinna til skiptis og á meðan bý ég í stúdentagörðum. Kostar 445 kr að leigja herbergi/íbúð með baðherbergi inní Köben með roommate, morgunmat, nesti í skólann og kvöldmat. Þegar maður mætir á svæðið þarna fær maður sinn Mentor, sem er gæji/skvísa sem tekur á móti manni og sýnir manni campið, skólann og allt félagslífið. Svo er þessi manneskja bara minn contact í sambandi við allt sem tengist skólanum, partý, djamm og svoleiðis :) Það er líka einn kennari sem maður hefur í sambandi við allt nám og svo einn námsráðgjafi sem hjálpar manni með gjörsamlega allt :) Það er líka hægt að fara í 5 mánuði til Grikklands að vinna sem Hotel Receptionist á 4-5 stjörnu hótelum með ágætum launum þannig séð, íbúð og sjúkrakostnaði. Eftir þetta nám tæki svo ábyggilega við meira nám í ferðafræðinni en tíminn leiðir það í ljós. Þetta Receptionist nám er í 2 ár og ég fílaða ;)

Hljómar helvíti vel miðað við að fara í kreppuna (engin vinna, enginn skóli) í mars. :)

Hvað finnst ykkur? :)


Yeah it's hard to be a nissemand!

17. desember 2008 klukkan 11:21

Góðan og bleessaðan!

Núna er kominn 17. desember.. hvert fór tíminn? Ef við teljum í vikum er ég búin að vera hérna í 2 mánuði! Surprised

Þegar ég var búin að vera í einn og hálfan mánuð í London þá var ég búin að kynnast 5 íslenskum stelpum, búin að fara í margar verslunarferðir, bæði inní London og Kingston, fékk systur mína í viku heimsókn, við skoðuðum London tourist style, fór á djammið, vorum með barbeque og ég veit ekki hvað og hvað, ég tala ennþá við 2 af þessum stelpum sem ég kynntist, Helenu og Öddu Laughing

Á síðustu 2 mánuðum hér.. hef ég farið í danska veislu, eina verslunarferð (fyrsta daginn hérna), tvisvar í bíó, kynntist 2 au pair stelpum sem mér fannst hrútleiðinlegar, ekki einu sinni hægt að halda uppi samræðum við þær, frekar vandræðalegt! Fórum einu sinni á rúntinn og rölt inní Ålborg.. annars ekkert annað! Yell

Fyrsti mánuðurinn hérna var ekkert skemmtilegur en svo núna nýlega höfum við strákarnir bondað þvílíkt mikið og ég er farin að geta spjallað við þá á dönsku :) Spilum nú á hverjum degi Foosball og ég er helvíti góð Cool svo erum við að klára púsluspil sem ég keypti handa þeim .. ætlum að klára þetta 1000 púsla spil á næstu 5 dögum haha :) Svo vilja strákarnir eiginlega alltaf vera inni hjá mér að horfa á flakkarann og jóladagatalið og Jacob vildi endilega lúlla hjá mér um daginn :)

Í gær þegar við fórum á handboltaæfingu vorum við að kappsyngja Hot and Cold með Kate Perry og Last christmas hehe þeir eru alltaf að syngja það lag :)


Jólin byrja skringilega, þeir eru með 8 jóladagatöl hvor og horfa á 3 sjónvarpsjóladagatöl, einn er soldið skemmtilegur og heitir e-ð Mikael og jólakortið, einn er um jólaálfa (nisser) sem eru fastir á eyju og það er einn mjöög stoltur íslenskur jólaálfur þarna, síðasta er mesta rugl sem ég veit um, hann er á þýsku, dönsku og bjagaðri ensku líka, hver þáttur endar á ,,Yeah it's hard to be a nissemand" haha algjört bull :)

Talandi um danskt sjónvarp, við erum með 2 stöðvar og það eru BARA fréttir eða danskir þættir til 12 á miðnætti og þá eru endursýningar á Xfiles. Ég held að Íslendingar sem þekkja ekki til Nik og Jay hafi ekki huugmynd um hvað þeir eru stórt númer hérna. Þeir eru alls staðar, nýja lagið þeirra er alltaf í útvarpinu, þeir eru alltaf í sjónvarpinu. T.d er þáttur núna sem fjallar um 70-80 ára hóp sem er að reyna vera cool, voru í fyrradag að læra að rokka og í gær voru þau að læra að dansa og rappa með sólgleraugu, lag með Nik og Jay, fyrir framan þá, þeir áttu mjög erfitt með að halda aftur af sér hlátrinum hahaha :) Þessi þáttur er mjög fyndinn hahaha.

En já jólin. Mér fannst mjög furðulegt að Jacob er með eina jólatréð í húsinu og það er inni í herberginu hans Surprised Svo eru jólaskreytingarnar svo skrítnar, allt svona litlir hlutir sem eru ekki í neinu samhengi og lítur út fyrir að vera bara drasl og ruslaralegt.. :s engar jólaseríur í gluggunum eða neitt svoleiðis. Ég er ekki í neinu jólaskapi á að vera hérna, þótt að við vorum að skreyta um 50 smákökur síðustu helgi sem var reyndar soldið kósý :) Langar geggjað að keyra inní Ålborg um helgina og reyna komast í jólaskap fyrir ferðina mína á mánudaginn :) Jólin verða ekki glötuð hjá mér, því ég er að fara til vinafjölskyldu okkar rétt fyrir utan Köben :) Get ekki beðið eftir að hitta þau og vera með Íslendingum í smá tíma og fá kannski ,,íslenskan" jólamat :) Var farin að kvíða því að fara í jólamatarboðið hjá foreldrum Elisubethar, með gæs og dádýr.. Ég er búin að kaupa jólagjafir handa strákunum sem ég vona að verða hittarar, Lego pakkar.. og svo get ég ekki keypt gjöf handa Elisubeth og Jens því ég bara á ekki fyrir því. Finnst líka leiðinlegt að fara til Tobbu, Sigga og strákanna með engar gjafir. Ég á von á 3 gjöfum frá Íslandi. Þær lentu í Danmörku á sunnudagsnótt og mamma keypti hraðflutning innan Danmerkur þannig þær ættu að vera komnar núna. Ég fór til dyra í gær þegar pósturinn kom og spurði hvort gjöfin sem hún kom með væri til mín og hvort hún vissi um mínar gjafir og hún sagði ,,Nej, jeg tror der vil ikke kommer nogen til dig". ÓGEÐSLEGA mean kelling og sagði þetta svo illa, þetta er semsagt ,,Nei ég held það komi ENGIN til þín".

En já enough for now.. þarf að henda mér í sund og þrífa á billjón, þarf að klára jólahreingerningarnar á 2 dögum, því það er jólaboð hérna á föstudaginn fyrir starfsfólkið á bænum sem ég þarf víst að hjálpa Jens með.

Ef einhver ætlar að vera sætur og senda mér jólakort;

Harpa Dís Haraldsdóttir
co/ Hjorth
Randrupvej 9
9293 Kongerslev
Denmark

er heldur ekkert ósátt við surprise heimsókn ;) hehe

Dag en og tyve

20. nóvember 2008 klukkan 11:15

Sorrrrrrry Embarassed Margt og lítið búið að gerast. Reyndi að gera blogg fyrstu vikuna en það datt út. Aðra vikuna þá ýtti ég á einhvern takka og allt þurrkaðist út :( Svo byrjaði ég á þessu bloggi hérna fyrir neðan á þriðju vikunni en kláraði hana ekki, en þetta er betra en ekkert er það ekki? :)


Jæja, núna eru liðnar þrjár vikur síðan ég mætti hingað í Kóngaslefið.Tongue out

Fyrsta vikan var voða róleg, fékk 10 hluti sem ég átti að gera daglega, var síðan að chilla þangað til þau komu heim, og svo voru tveir risa þrif dagar. Elisabeth tók mig á sunnudeginum í hjólatúr, ég hef ekki hjólað síðan ég var pínulítil og datt illa og er með svaka ör. Þannig ég overcame my fear Laughing Á föstudeginum fór hele familien í afmæli til pabba Elisubethar, ég fór mjög snyrtileg þangað og hélt ég væri bara ágætlega fín. En þegar við komum þangað þá voru bara fín jakkaföt og svaka flottir kjólar! Surprised Þetta var ekki stórafmæli, heldur var þetta 72 ára afmæli og svaka veisla í tilefninu. Þarna voru systur Elisabethar og þeirra Au Perur, mikið var gott að tala við einhvern á mínum aldri, váá! Elisabeth, strákarnir og ég ætluðum að gista þarna eina nótt en ég ákvað að stinga af heim með Jens, því það var Manchester - Arsenal leikur á laugardeginum. Jens fór í nokkra daga veiðiferð til Póllands og því var ég ein í höllinni Tongue out 

Það var geggjað að geta bara vaknað þegar ég vildi, fékk mér sundsprett, eldaði mér minn eigin mat, horfði á leikinn og svo byrjaði sex and the city maraþonið sem entist heila viku! Vika tvö var soldið strembin, mikið að þrífa og mikill þvottur eftir ferðina og það hjálpaði ekki að Jens var heima einn dag svo ég missti einn þrifadag úr vikunni. Ég eldaði 4 daga þessa vikuna og mér finnst merkilegt að það er ekki það sem verklýsingin sagði í byrjun Yell Ég elska að elda en þegar maður þarf að redda bíl til að kaupa allt inn, elda matinn, leggja á borð og skera niður grænmeti og fleiri meðlæti, undirbúa nestisbox fyrir næsta dag og bíða eftir að þau klári matinn til að geta gengið frá tipp topp er frekar leiðinlegt til lengdar.



Svo skrifaði ég bréf til ömmu og afa og er með smá lýsingu á fjölskyldunni sem ég ætla pastea hérna :)

Smá lýsing á fjölskyldunni:
 
Jacob (7 ára): Hann er algjört æði, minnir mig rosalega á Kormák frænda. Mjög auðvelt að eiga við hann og hann er fyndinn! Hann svarar mér alltaf á ensku, sagði áður en ég kom ,,Mamma, svo þegar ég fer í þriðja bekk verð ég bestur í ensku í bekknum." Hann er mjög metnaðarfullur, sérstaklega í lærdómnum og elskar að læra, og gerir meira að segja aukalega við það sem hann á að læra. Hann er á þeim aldri þar sem hann er að apa soldið eftir eldri bróður sínum, sem er ekkert alveg nógu gott. En hann er algjört yndi :) Náum voða vel saman.
 
Thomas (10 ára): Hann er frekar erfiður, en samt góður þegar maður kemst að honum. Eitt dæmi; í afmælinu hjá afa hans þá átti ég að láta þá borða og fara að sofa klukkan 10. (Ætluðum að gista þarna, ég, strákarnir og Elisabeth). Þegar ég sagði honum að fara upp í náttföt varð hann reiður og fór inn í stofu til ömmu og afa sem voru í því þannig þau dekruðu aðeins við hann. Svo var Jacob farinn í háttinn og Jens (pabbinn) var að fara heim og ég ákvað að fara bara með honum heim í staðinn fyrir að gista þarna um nóttina. Þá allt í einu varð Thomas svaka sár því ég var að fara. Hann vill að allt fari eftir sínum reglum, annars fer hann að ,,gráta". Mjög góður leikari þessi strákur.
 
Jens (45 ára): Algjör veiðikall! Mér brá fyrst á að koma inn í húsið og sjá öll hornin og hausana á veggjunum. Svo fór hann í vikuferð til Póllands með félögunum í veiðiferð og skaut fullt af dádýrum. Svo er þetta í matinn, dádýrahakkbollur, ekki gott en ég smakkaði þó . Hann vinnur mikið en er samt soldil karlremba sem býst við því að ég og elisabeth gerum allt í
kringum hann.
 
Elisabeth (40 ára): Mjög fín, algjör dúlla, held hún sé að leita að félagsskap líka. Hún er rosalega fullkomnunarsinni og vill að allt sé gert eins og hún gerir það, annars verður hún soldið upset/pirruð.
 
Allt í allt er þetta mjög fín fjölskylda. Alltof mikil þrif fyrir Au Pair starf og alltof lítið af barna,,pössun".

Ålborg, dag to

01. nóvember 2008 klukkan 23:48

Jeg tænker på dansk, jeg drømmer på dansk og svar mine venner på dansk.Surprised

Morguninn byrjaði of snemma fyrir minn smekk, var vöknuð kl hálf 8 (hálf 7 heima) og skellti mér í góða sturtu, fór svo niður í útbúinn morgunmat (brauðbolla og ostur) og svo fórum við öll saman hele familien í skóla strákanna. Það var svona opið hús og ekkert smá mikið af fólki. Elisabeth og Jens þekktu alla og voru mikið á spjallinu þannig ég var eiginlega pínu outsider hehe Embarassed

Prógrammið byrjaði á svaka 45 mínútna leikriti. 5 bekkur sá um að leiða túr um heiminn og yngri bekkirnir léku, dönsuðu og sungu til að kynna löndin. Jakobs bekkur var Kína og var í kínverskum náttfötum, í kínverskum skóm og með kínverskan grænan pappahatt. Bekkurinn hans Thomas svo Rússland, ég bjóst við honum uppá sviði en hann var víst að spila á hljóðfæri fyrir neðan sviðið. Þetta voru rosalega flott og vönduð atriði, gaman að sjá svona danskt leikrit og skilja voða lítið Tongue out Eftir leikritið fóru allir krakkarnir út og hlupu útum allt þannig við vorum að leita að þeim í svona klukkutíma, þá fórum við að skoða öll verkin þeirra, myndir og styttur. Ekkert smá flott hjá þeim. Jakob er 7 ára og gerði mjög flotta styttu af gírafa, Thomas teiknaði svo Kínverska Manga mynd. Þegar við vorum búin að skoða listaverkin, búin að fara á bókasafnið að svara reikningsgátu og föndra oog fá okkur smá kræsingar hélt ég að við ætluðum að fara heim en neibb, þá þurfti að sýna leikritið aftur. Kl hálf 2 komum við svo heim og ég fór upp í herbergi og steinrotaðist í 2 tíma, vaknaði svo við það að einhver var að sniglast inn í herbergið og kíkja hvort ég væri vakandi Laughing 2 mínútum seinna komu þeir báðir og spurðu hvort ég vildi kíkja með þeim í sundlaugina:) Já by the way þá er innisundlaug hérna og heiti pottur. Við fórum aðeins að leika þar, svo kom ég upp í herbergi og horfði á Man U - Hull á netinu, Takk Bjössi Kiss Þegar leikurinn var búinn var kominn matur, fín steik, heimagerð bernaise sósa (Toppar ekki næstum því þína mamma Innocent) og þessar líka fínu kartöflur sem þau höfðu ræktað, þessu var skolað niður með BJÓR, ótrúlegt en satt Surprised.

Strákarnir eru svo miklar dúllur, við fórum að spila Uno eftir mat og svo báðu þeir mig um að horfa á Starwars með sér , og ég gerði það! Yell Vona ég hafi fengið stórt score þar, því þetta var nú meira bullið Laughing Er búin að kynnast honum Thomasi í dag, þeir komu báðir uppí herbergi í gær þegar Thomas var búinn í afmælinu og buðu mér god nat. Jakob er ein mesta snúlla sem ég veit um, hann kemur alltaf til mín og býður mér góðrar nætur og svo er alltaf eins og hann vilji knúsa eða kyssa góða nótt en hann veit ekki hvort hann má það :) Þegar við fórum í stóra göngutúrin í gær týndi hann blóm fyrir mig :) og Thomas fílar mig líka því hann leiddi mig um allan skólanum í dag og sýndi mér allt, svo er hann svo mikil dúlla að hann er alltaf að passa að mér sé ekki kalt, að mér leiðist ekki, að ég skilji hvað er í gangi og ég hafi það sem best.Smile

En jæja,

Nu skal jeg sove fordi i morgen gå vi ind i byen og købe julegaver.

Aalborg 1 dagur

31. október 2008 klukkan 19:44

Jæja þá er ævintýri 2 byrjað.

Mætti á flugvöllinn í Keflavík í smá stressi og það þurfti að borga 23 þúsund krónur fyrir yfirvigt!! Hljóp tvisvar í gegnum allan flugvöllinn út af því og svona :) Var með síðasta fólkinu inn og hafði það mjög næs í Icelandair flugi. Þegar ég lenti á Kastruup þá settist ég bara niður og beið þar í einn og hálfan tíma og labbaði svo allan flugvöllin til að komast í flugvél sem flaug mig svo til Ålborgar. :) Flugið var fáranlega stutt og í þessu flugi var fallegasti dani sem ég hef nokkurn tíman séð :Þ Ég var svo stressuð að töskurnar hefðu ekki farið allar leið og beið og beið eftir þeim, eftir svona korter komu þessar elskur og ég rölti að finna hana Elisubeth.

Elisabeth er algjört æði Kiss Þau eru bæði voða vinaleg og þægileg í umgengni, held samt að hún sé soldill hreinsifíkill og hann sé soldið vanafastur Smile

Húsið er HUGE! Eldgamalt reyndar. Ein byggingin er frá 1500 og eitthvað. Mitt herbergi er rosa sætt. Stórt rúm, kommóða, sjónvarp og dvd, snyrtiborð með spegli, sófi, tveir stólar, borð og skápur. Hátt til lofts og svaka gluggar. Ég er með eigið baðherbergi. Hún var búin að kaupa tannbursta og tannkrem, tvö sjampó, hárnæringu, body lotion, shower cream og toblerone og pakka því inn í pakka með korti Embarassed

Þau eiga risastóran Sheffer sem heitir Kosmo, 3 ára. 5 ára kisu sem heitir Emile og þau eru svoo fyndin saman, alltaf að sleikja hvort annað eða að slást Smile

Þegar ég kom svo ,,heim" í gær þá reyndi ég að sofna, en gat það bara engan veginn fyrr en mjög seint. Þannig ég rotast ábyggilega eftir smá. Dagurinn byrjaði á því að ég og Elisabeth fengum okkur að borða smá morgunmat kl 8. Svo röltum við um búgarðinn og heilsuðum uppá einn starfsmann. Þau eru semagt með jólatrébúgarð og kartöflubúgarð á SVAKA landi, stærra en landinu hjá ömmu og afa meira að segja. Svo komum við inn og fórum (ég keyrði) svo í einhvern lítinn bæ hérna rétt hjá sem ég man ekki hvað heitir. Þar skráðum við mig inn í landið, ég fæ ,,danskan ríkisborgararétt", þannig ég þarf örugglega að borga skatta og svona Foot in mouth Þar á eftir, keyrðum við inní Ålborg og versluðum 3 jólagjafir. Það er pakkað öllu inn ótrúlega flott í öllum búðum hérna, ef þú segir að þetta sé jólagjöf. Svo fórum við í skóla strákanna. Við sóttum yngri strákinn (Jakob) og vin hans, fórum svo heim og borðuðum (pulsur og litlar kjötbollur) Yell Eftir að við gengum frá eftir matinn fórum við í svaka göngutúr um mest allt svæðið þeirra. Löbbuðum meðfram jólatrjágarðinum og að mjög sætum gangstíg. Svo komum við að stóru vatni og löbbuðum í gegnum geggjaðan skóg með fullt af haustlaufum og hnetum. Þegar við komum svo inn var aftur komið að því að elda.

Í kvöldmatinn....... var DÁDÝR, rjómalagaðar kartöflur og laukur og salat með vinegar...Yell En ég fékk að skola þessu niður með bjór Cool 

Ég er ekki alveg að ná allri dönskunni, er enn pínku ponsu feimin við að tala hana því ég skil ekki alveg hvað þau eru að segja til baka hehe... en það hverfur örugglega á no time. Jakob (7 ára) er svo mikil dúlla, hann er ALVEG eins og uppáhalds litli frændi minn hann Kormákur, ég sýndi honum mynd af Kormáki og hann hélt þetta væri hann, hann bara skildi ekki hvaðan þessi mynd kom hehe. Hann veit ekki hvort hann á að tala dönsku eða reyna þessi fáu orð sem hann kann í ensku til að tala við mig, og ef ég tala við hann dönsku þá tekur hann ekki eftir því, þannig það kemur oft svona vandræðaleg þögn :Þ en hann er svo opinn og skemmtilegur að við verðum buddies eftir smá Laughing Það var eitt svo fyndið í dag, þegar hann kom úr skólanum í dag þá fór hann út á mitt gólf og dansaði Michael Jackson spor og endaði dansinn á að grípa í miðjuna á sér hahah Cool Það var æði Tongue out Ég er ekki ennþá búin að hitta eldri strákinn, hann Thomas og er pínku kvíðin fyrir því, Elisabeth sagði að hann væri eiginlega andstæðan við Jakob. Á morgun er svo svaka sýning í skólanum þeirra þar sem þeir eiga að kynna hvert sitt land. Jakob er Kína og Thomas er Rússland hehe... þetta verður æði :)

Jæja, ætla að fara að joina þau í dönsku sjónvarpsglápi, ætla aðeins að slá í gegn með íslensku nammi Wink

Sorry :)

21. mars 2008 klukkan 12:42
Jæææja komin vika síðan síðast ?Ég fór í bloggverkfall þangað til að Agnes myndi blogga og það gerði hún í gær þannig ég verð nú að standa við mitt :)

En já það er mikið búið að vera í gangi núna nýlega... Gæti verið að ég sé á leiðinni heim en það kemur allt í ljós núna í dag. Það var leiðinlegur peningamisskilningur. Ef við komumst að samkomulagi þá kem ég heim 31.maí en ef ekki ætlum við að reyna finna aðra fjölskyldu (sem er mjög tæpt fyrir bara tvo mánuði) og ef við finnum ekki, er ég örugglega bara á leiðinni heim bráðlega. Seeem er mjög ! leiðinlegt því að Anna mín var búin að kaupa flug og ég hafði fengið leyfi frá Einari en svo klukkutíma seinna þá var bara breytt um skoðun og mikil óvissa. Langar að vera hér, líður æðislega og allt gengur mjög vel með Klöru litlu, hún meira segja sofnaði hjá mér í gær :)

En eruði að grínast með hvað pundið er dýrt? Það er búið að hækka um 25 krónur síðan ég kom! Hvað er í gangi þarna á Íslandi?? Bensín hefur aldrei verið hærra... æi er ekki nógu dugleg að skoða mbl og visir, veit ekkert hvort þetta sé búið að breytast. og HALLÓ? Evran búin að hækka úr 86 í 126 síðan ég og Elín vorum á Torrevieja um áramótin! Þetta er rugl! En nóg af peningatali...

Á laugardag voru þau með heimsókn og þá var þvílík veisla af mat og svo smá partý hjá þeim eftir á og svo á sunnudaginn fórum við í vængefnasta hús sem ég hef farið inní! Íslensk fimm manna fjölskylda með örugglega 700 fermetra hús og 1000 fermetra garði og 70 fermetra skrifstofu út í garði! Það er Au Pair hjá þeim og hún er bara með sér íbúð og ferðast með þeim í önnur lönd á skíði og svona bara :) Þvílíkur lúxus!

Heyrðu ég ætlaði sko aldeilis að nýta frídagana mína, mánudag og þriðjudag en þá varð ég bara VEIK! Sko ég fæ aldrei hita eða neitt en ég fékk allt :O. Notaði mánudaginn í að horfa á 3 eða 4 fótboltamyndir og þátt um gamla uppáhaldið mitt Andy Cole nr 9!! :) það var æði að slappa bara af líka og enginn heima :) Svoo á þriðjudag ákvað ég nú að drífa mig bara niðrí bæ því Einar ætlaði að láta mig fá pening og svona ... jah fattaði þá hvað er lítið hægt að fá fyrir pundin (rándýrt að fara í leigubíl hérna)! Kostaði bara 50 pund að fara niðrá Oxford Street, borða og heim aftur ! En sem betur fer átti ég smá pening og náði að eyða honum öllum í föt, dvd og eina ,,bók"!! :) Það var æðislegt að ferðast svona ein en vá hvað var skrítið að fara ein út að borða... :/

Í gær var ég að spjalla við mömmu og sá hana í webcam og vá þá fékk ég nú smá heimþrá! Svo sýndi hún mér Kíruna mína :) og talaði við hana í síma hehehe og hún algjööör dúlla leitaði að mér útum allt, bak við hurð og svona :) Þarna láku sko fyrstu tárin, Kíran algjört krútt og saknar mín greinilega mikið því hún fer inní herbergi til mín og lúllar stundum þar og svo var líka frekar erfitt að sjá mömmu sína svona marna :/ Fyrir hva viku eða 2 vikum þá lenti hún í harkalegu bílslysi þar sem helvítis kelling keyrði inní húddið bílstjóramegin og vá myndirnar eru ógeðslegar af bílnum! Svo segir þessi ógeðslega kelling að hún hafi keyrt á grænu!! Vá soldið erfitt að vera hérna úti í London og rífast en ekkert geta gert ! :(

En já í kvöld er Helena Au Pair skvísa að koma til mín og ég var að kynnast annari sem býr RÉTT hjá mér og heitir Adda. Hún verður líka með gest um helgina og við ætlum að hittast allar 4 hérna í Esher og fá okkur að borða og kíkja kannski í bíó og á pöbb :) Svo á morgun ef ég ,,þekki" okkur rétt þá eigum við nú eftir að fara smá niðrí bæ og shoppa fyrir kvöldið og skella okkur svo á tjúttið með þónokkrum au pair skvísum! Held við séum alveg 5-6 :)

Farin að laga smá til og ég læt ykkur vita um leið og ég veit hvort ég sé á leiðinni heim eða ekki :)

KVITTA TAKK :)

...

13. mars 2008 klukkan 11:53

Smá blogg líka :)

En það er voða lítið búið að gerast síðustu daga, er bara búin að vera að passa hana og skoða hverfið betur! GUÐ MINN GÓÐUR það er ein gata sem liggur í downtownið hérna í Esher og í þessari götu eru sko hús fyrir örugglega meira en 400+ milljónir (okkar gata er 200m+) þetta eru hús eins og stjörnurnar eiga, hjúmongus (kann ekki að skrifa þetta á ensku) hús, geðveikir bílar og sjúkar innkeyrslur. Ætla taka myndavélina með næst þegar ég fer á röltið til að sýna ykkur :) Einar er líka pottþéttur á að það sé big celeb í einu húsi þarna þar sem er svo þéttur gróður og hár að það sést ekkert í húsið og líka þvílíkt hlið þarna fyrir framan húsið! Svo sagði Áslaug mér að það væri Formúlu 1 kappi hérna ;) wrúúúmm wrúúúúmm!

En vá er að vinna um helgina og er í fríi á mánudag og þriðjudag og ætla nýta tímann þá til að fara niðrí London og á Oxford Street, kaupa mér eitthvað sweet og reyna finna klippingu og litun :) Svo er helgin eftir það crazyness því þá ætla ég og Helena sem er Au Pair líka að mála bæinn dökkrauðan!! Talandi um djamm þá var ég að skoða á netinu síðu sem er með allt um london og DAMN hvað eru margir góðir tónleikar og dj-ar hérna :) Elín... til dæmis er Booty Luv að spila hérna um helgina... Are you ready cause I am... :'(

Það var smá tilbreyting í gær frá ristuðu brauði að fara aðeins út að borða inní bæ, fórum á stað sem heitir Red Chili, Peppets eða eitthvað þannig og allt var svona frekar ,,uppalegt" þannig ég fékk mér bara pizzu með pepp og chili hehe (jafnast samt ekkert á við Puccini, staðinn á Torrevieja SHIT)! Það kom líka smá gestur að nafni Garðar Cortes í heimókn í gær :O Þótt ótrúlegt sé frá svona ,,uppa" gaur þá var hann næs og viðkunnanlegur, sérstaklega í svona (Garðar Gísla stæl) rauðum sokkum við brún eða grá jakkaföt. Ætli þetta fylgi nafninu?

En já er farin að vekja litlu Klöru, skutla henni á leikskólann og versla inn ristað brauð! :)

ENDILEGA KVITTA, þótt það sé lítið, OG MUNIÐ, þið eruð alltaf velkomin til LONDON BABY :)

Sú fjórða í Nylon!

13. mars 2008 klukkan 11:30
ELLEN: Haha ég óheppin? Er aaalltaf heppin :) En quotið er snilld og verður framvegis quoteið mitt for life! haha. LONDON BABY!!

INGUNN: Hehe já þetta gerðist svo hratt, ég bara var í sálfræði og svo komin út til London! :O :D Takk fyrir kveðjurnar þetta er osom eins og þú segir alltaf ;)

HUGGA: Æðislegt að heyra frá þér enda alltof alltof langt síðan við töluðum saman :) Er svo til í pöbbarölt með þér eins og í gamla daga þegar ég kem aftur heim :)

AGNES: Ég sakna þín líka!! Var svo þreytt þarna kvöldið fyrir og var með gesti til 12 :) En 3 mánuði?? Þið verðið að koma til mín, allavega þú :) En já hvernig væri að vera á msn einhvern tímann? Aldrei nær maður í þig í síma heldur :O :) En lov jú og vona allt gangi vel með íbúðina :*

ANNA MÍN: Æi Kíra krútt þú verður að sýna mér hana í webcam bráðum því ég sakna hennar svoo :) Líka Klara litla hehe. En Anna þú kemur út og ég sé til þess!! Sakna þín aðeins of mikið þó það sé bara liðin ein vika! Syndi kannski bara móti þér? ;)

ELVAR: Ég leitaði og leitaði en fann hann ekki og fór aftur og leitaði... líður eins og mig hafi dreymt að Joey væri bara hlutverk í þætti... en það getur ekki verið, ég finn hann á endanum! :)

SINDRI: Garðar er að fara að koma á sunnudaginn og gista nokkrar nætur, kannski villist hann á hurðum og við förum í óperukeppni ;) haha

MARÍA: Þú ert snúllukrútt og ég dýrka fá komment frá þér hehe :) En Já mér finnst hann ekkert beyglaður í sjón, hélt hann væri eldri og leiðinlegur bara :p En Nei þá er hann eins og Garðar Gísla... í RAUÐUM sokkum og mjög nice :)

INGUNN: Planið er að fara til Parísar síðustu helgina í mars, hvenær verður þú þar? :)

MAMMA MÍN: Já ég þori nú ekki að keyra alveg strax, enda eru þau á RISA Land Rover og göturnar alveg fáranlega litlar! En ég vona þú náir þér alveg og þú lætur Önnu bara stjana við þig, ekki fara of geyst af stað ! Lov lov

DAGNÝ: Sömuleiðis skvís :) Gaman að spjalla við þig þar sem við erum að upplifa það sama á sama tíma hehe :p Bið að heilsa Óla;)

VIGDÍS: Heyrðu heldurðu að Einar sé ekki bara í bullinu og kaupir BLÁAN Doritos, líður eins og ég sé að halda framhjá þér :| Doritos félagi ;) Heyrðu hann segir að hann umbi ekki fyrir svona sætar stelpur ;)

ELÍN: SAKNA ÞÍN! Hef ekki séð þig í ár og aldir, varla ekkert síðan við komum heim um miðjan Janúar :O En já það er ALLTAF pláss fyrir þig elsku snúllan mín, anytime :) Ef þú kemur þá skal ég reyna finna maccarann fyrir okkur ;) OG OG OG hvorug stelpnanna hérna fílar techno og það eru svo sjúklega margir dj-ar hérna hverja helgi að þú verður eiginlega að koma og dansa með mér :)

SÆRÚN: guðð þarf maður þá að mæta í fancy fötum og allt? :D En fyndið bíó :P Já eða svona fórum í Selfridges (e-ð þannig) og það er maniac að fara þarna inni, við villtumst og allt :) Með hverju mælirðu á Oxford Street? :) Vildi að ég væri þarna hjá ykkur þegar prinsessan fæðist, en ég mun bara kaupa eitthvað hérna úti fyrir hana og koma skoða þegar ég kem heim :)



Hvar er Kíla?

09. mars 2008 klukkan 14:02

Kíra er heima, á Íslandi!

Þessi spurning og þetta svar kemur allavega 100 sinnum á dag:) Allir virðast verða ástfangnir af Kírunni minni og Klara er engin undanþága! Reyndar er litla Klara svo mikil dúlla að hún fékk alla í búðinni til að dansa með sér :)

Síðustu daga hef ég sofið þvílíkt mikið! Komum kl 8 á fimmtudaginn og ég svaf til 10 á föstudeginum! Þá fórum við Áslaug inní bæinn... fórum í The London Eye, sem er RISA stórt parísarhjól og sáum yfir alla borgina! Fullt af flottum húsum, sérstaklega öll Parlament húsin sem eru sjúk og þvílík gæsla líka í kringum þau. Svo fórum við á smá rölt og löbbuðum yfir Thames ána og hjá Big Ben (þar sem Joey keypti sér hattinn og fór inní kortið hehe) :) Svo fórum við í Leicester Square og fengum okkur sjúka pizzu, á þessu torgi er líka bíó sem heitir Odeon og er stærsta bíóið á Englandi, þarna koma allar stjörnurnar þegar það er forsýning. Á sko eftir að tékka á því :p og enduðum á molli sem er gjörsamlega með ALLT! :o

Eftir þetta fórum við aftur heim og ég svaf frá 7 til 9 daginn eftir! Í gær fórum við svo í búðina og skutluðum Áslaugu á lestarstöðina því hún fór til Parísar!! :O Bara jájá, er að spá í að skreppa bara aðeins til Parísar okey bææ :) Sweet! Eitthvað sem ég þarf að gera ;) En svo gleymdi hún vegabréfinu þannig Einar stökk til hennar og ég passaði allan daginn. Svo í gær fengum við okkur bara að borða um 8, fengum gest og svona! Svo fór ég uppí herbergi og ætlaði aðeins í tölvuna en steinrotaðist... ætluðum að fara á pubbinn ég og Leifur, bróðir Áslaugar. :) Gerum það kannski bara í kvöld í staðinn :)

En já í morgun er ég bara búin að vera passa litlu krús og við fórum í þvílíkt langan göngutúr um hverfið og dííses hvað eru mörg flott hús og flottir bílar hérna :)

Er búin að taka nokkrar myndir og hendi þeim inn á dögunum :)

Næst á dagskrá er svo að fara í Kingston og kíkja í mollið þar sem á víst að vera HUGE! Svo ætla ég að hitta aðra Au Pair skvísu  og svo kemur Guffi og stoppar í bænum í smá tíma á þriðjudaginn.


Er farin að fá mér ristað brauð hehe (lifi á því hérna).

ps. sef í rúminu hans Garðars Cortes ;) hehehe

London beibí!

08. mars 2008 klukkan 21:34
Jæja þá er ég komin til London, eða réttara sagt Esher sem er í úthverfinu af London :)

Er í fínu herbergi, fínu húsi, í fínu hverfi hjá fínni fjölskyldu :)

Blogga á morgun! Nenni því ekki núna hehe